Norðurlöndin: Undanúrslitin héldu áfram í Svíþjóð
(Kristinn Steinn Traustason)

Undanúrslitin í úrslitakeppninni í Svíþjóð héldu áfram í dag með tveimur leikjum, einum karla megin og einum kvenna megin. Sävehof tapaði fyrsta leik sínum í undanúrslitunum á meðan Skara vann nauman sigur á útivelli.

Birgir Steinn Jónsson var á sínum stað í liði Sävehof sem tapaði fyrir Malmö á útivelli með tveimur mörkum, 31-29 en Birgir Steinn skoraði fjögur mörk úr sjö skotum en öll fjögur mörkin komu af vítalínunni, hann bætti við einnig stoðsendingu og fékk tvær brottvísanir að auki. Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Sävehof, Partille Arena næstkomandi miðvikudagskvöld.

Lena Margrét Valdimarsdóttir sem gengur í raðir Fram í sumar var á sínum stað hjá Skara sem unnu gríðarlega sterkan og nauman sigur á Önnereds á útivelli, 24-25. Lena Margrét átti fínan leik en hún skoraði fjögur mörk úr sjö skotum og bætti við fjórum stoðsendingum. Næsti leikur liðanna er einnig á miðvikudagskvöldið í Skara.

Úrslit dagsins

Malmö 31-29 Sävehof

Önnereds 24-25 Skara

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top