
Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa bæði KA og Þór sett sig í samband við Sæþór Atlason hægri hornamann Gróttu en samningur Sæþórs við Gróttu rennur út í sumar. Sæþór gekk í raðir Gróttu fyrir tímabilið 2024/2025 og lék með liðinu í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og í Grill66-deildinni í ár eftir að liðið féll úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Bæði KA og Þór eru í leit af hægri hornamanni fyrir næstu leiktíð en Einar Rafn Eiðsson yfirgefur KA í sumar og flytur á höfuðborgarsvæðið og því er KA einungis með tvo örvhenta leikmenn í sínum leikmannahópi. Sæþór skoraði 81 mark fyrir Gróttu í Grill66-deildinni á þessari leiktíð en liðið tapaði í undanúrslitum umspilsins gegn Herði og leikur því áfram í næst efstu deild á næstu leiktíð. Sæþór er uppalinn á Selfossi og lék með liðinu í Olís-deildinni áður en hann skipti yfir til Gróttu sumarið 2024.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.