Spennandi að vinna með Halldóri og spila í nýrri deild
HK handbolti

Á dögunum tilkynnti HK að Daninn, Andrew Wisman myndi leika með liðinu á næstu leiktíð í Olís-deild karla en HK endaði í 8.sæti deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

Wisman er fæddur árið 2004 og gerir tveggja ára samning við HK sem hefur misst töluvert af leikmönnum frá síðustu leiktíð en Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson hafa gengið í raðir Hauka, Ágúst Guðmundsson hefur gengið í raðir FH og Haukur Ingi Hauksson í Fram.

Wisman gengur í raðir HK frá danska félaginu Nordsjælland þar sem Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK þekkir til, en Halldór Jóhann þjálfaði Nordsjælland. Wisman var lánaður til sænska félagsins IF Ystad í febrúar og lék sex leiki með liðinu í sænsku úrvalsdeildinni og skoraði ellefu mörk.

Nordsjælland fjallar um vistaskipti Wisman til Íslands á heimasíðu sinni.

„Andrew hefur sýnt fram á hæfileika sína hjá Nordsjælland. Nú er kominn tími til að nýta þá til fulls og við höfum þegar séð sýnilegan svip á því á þessu tímabili, bæði hjá TIK og Ystad. Nú bíður hans ný og lengri dvöl í deild eins og þeirri íslensku, sem er að þróast vel en samt á því stigi að hann hefur góða möguleika á að blómstra. Við hlökkum til að fylgjast með Andrew og hans þróun á ferlinum," sagði þjálfari Nordsjælland Laurids Søgaard.

Á heimasíðu Nordsjælland segir að þrátt fyrir að Andrew hafi aðeins verið unglingaleikmaður félagsins þegar Halldór Jóhann stýrði Nordsjælland hafi hann oft tekið þátt á æfingu aðalliðsins undir stjórn Halldórs.

„Það verður spennandi að vinna með Halldóri aftur og ég sé það sem kost að hann þekkir mig sem leikmann og hefur séð mig áður. Ég er viss um að hann getur kennt mér margt og það auðveldar líka aðlögun mína að hann geti talað dönsku. Þar að auki verður spennandi að koma í nýja deild og menningu sem er ólík bæði Danmörku og Svíþjóð. Ég er sannfærður um að það muni þróa mig bæði sem leikmann og manneskju,“ sagði vinstri skyttan.

„Ég mun sakna félagsins mikið. Þetta var hér sem allt byrjaði fyrir mig og Nordsjælland mun alltaf hafa mikla þýðingu fyrir mig. Það er margt gott fólk í og ​ kringum félagið og þetta er eins og stór fjölskylda,“ segir Andrew að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top