Úrslitahelgin klár: Risaslagir framundan í Búdapest

Í vikunni var dregið í undanúrslit FINAL4 í Meistaradeild kvenna, sem fara fram 6. og 7. júní í MVM Dome í Búdapest. Þar mætast fjögur af sterkustu liðum Evrópu í baráttunni um stærsta titilinn í félagsliða handbolta.

Í fyrri undanúrslitaleiknum mætast Brest og ríkjandi meistarar Györ. Liðin hafa áður mæst á þessu stigi keppninnar, þar sem Brest hafði betur árið 2021 á leið sinni í úrslitaleik. Nú fá Frakkarnir tækifæri til að endurtaka leikinn gegn einu sigursælasta liði keppninnar.

Í hinum leiknum eigast við Metz og CSM Búkaresti. Rúmenska liðið er komið aftur á stóra sviðið eftir átta ára fjarveru og dreymir um að endurtaka titilinn frá 2016. Metz hefur hins vegar verið eitt stöðugasta lið Evrópu síðustu ár og leikur sinn þriðja úrslitahelgi í röð.

Leikirnir fara fram laugardaginn 6. júní (undanúrslit) og sunnudaginn 7. júní (úrslitaleikur og leikur um þriðja sætið). Með þessa uppstillingu er ljóst að úrslitahelgin gæti vart orðið spennandi – þar sem Evrópskir risar mætast í beinni baráttu um titilinn.

Leikjadagskrá FINAL 4

Laugardagur 6.júní
Kl 13:00 Brest - Györ
Kl 16:00 Metz - CSM Búkaresti

Sunnudagur 7.júní
Kl 13:00 Leikur um 3.sætið
Kl 16:00 Úrslitaleikur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top