
Þrátt fyrir einungis 25% markvörslu var Björgvin Páll Gústavsson einn af fáum ljósu punktunum í liði Vals í sex marka tapinu gegn FH í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á mánudagskvöldið. FH hafði betur 31-25 og jafnaði þar með einvígið 1-1 en liðin mætast í þriðja sinn í Valsheimilinu í kvöld klukkan 19:30. Björgvin Páll varði 10 skot í leiknum og þar af þrjú vítaköst. Það dugði hinsvegar ekki til og áttu markmenn FH svipaðan leik en þeir vörðu samtöl tíu skot einnig. ,,Hann gerir það sem hann getur til að reyna halda þeim inn í þessu. Hann ver tvívegis tvöfalda vörslu og er besti leikmaður Vals í þessum leik. Það er ekki upp á hann að klaga," sagði Vignir Stefánsson um frammistöðu Björgvins í leiknum en rætt var um leikinn í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans eftir leik. Þá var einnig rætt um frammistöðu Daníels Freys Andréssonar og Jóns Þórarins Þorsteinssonar markvarðar FH í Handboltahöllinni sem hægt er að sjá hér að neðan. Rætt var um leikinn einnig í uppgjörsþætti Handkastsins strax að leik loknum þar sem spáð var í spilin fyrir leikinn í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.