Elvar hefur spilað frábærlega í Danmörku
ADA

Athygli vakti að Andri Már Rúnarsson leikmaður HC Erlangen var ekki í leikmannahópi Snorra Steins fyrir komandi landsliðsverkefni Íslands í Egyptalandi í maí þar sem Ísland leikur tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum í Kaíró.

Andri Már var í lokahópi Íslands á Evrópumótinu í janúar en kom lítið við sögu. Snorri ætlar að nýta sér þennan glugga í maí að prófa fleiri leikmenn og einhverjir hefðu haldið að Andri Már myndi fá tækifærið í þessum verkefni.

Snorri Steinn var spurður út í Andra Má og þá ákvörðun hans að velja hann ekki að þessu sinni í viðtali við Handkastið eftir að hópurinn var tilkynntur.

,,Hann hefur spilað lítið að undanförnu og er meiddur. Þó hann sé ekkert illa meiddur en ég hef valið hann áður og ég veit nokkurnveginn hvar ég hef hann. Hann var mjög nálægt því að komast í þennan hóp en það eru líka aðrir strákar eins og Elvar Ásgeirsson sem ég hef fylgst með og hefur spilað frábærlega í Danmörku, eins Einar Bragi sem mig langar að upplifa á æfingum. Það er öðruvísi að horfa á þá í sjónvarpinu heldur en að upplifa þá og ég held að það sé holt og gott að stækka þennan hóp."

Elvar Ásgeirsson var valinn besti leikmaður Ribe Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í vetur en hann var bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í liði Ribe Esbjerg. Hann var kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumótinu eftir að Elvar Örn Jónsson handarbrotnaði en fékk þó ekkert tækifæri á mótinu sjálfu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top