Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti á þriðjudaginn 18 manna leikmannahóp sem ferðast til Kairo í Egyptalandi um miðjan maí og leikur þar tvo vináttulandsleiki gegn heimamönnum. Í fyrstu ætlaði Snorri Steinn að tilkynna hópinn á mánudaginn en með stuttum fyrirvara var því frestað um sólarhring. Snorri Steinn viðurkenndi í viðtali við Handkastið eftir að hópurinn var tilkynntur að frestunin hafi átt sér stað til að trufla ekki nýliðana, Jón Þórarin Þorsteinsson og Jón Bjarna Ólafsson leikmenn FH sem mættu Val í öðrum leik úrslita einvígsins um Íslandsmeistaratitilinn á mánudagskvöldið. ,,Ég fattaði það bara sjálfur aðeins of seint og ég skammast mín ekkert fyrir það. Mér fannst mjög eðlilegur hlutur að fresta tilkynningunni aðeins. Ég get ímyndað mér það að þegar þú ert valinn í fyrsta skipti í A-landsliðið þá hreyfi það aðeins við þér og ég vona að það geri það. Ég vildi bara ekki trufla þá í sínum undirbúningi þó svo að fyrir mig sem Valsara hefði það verið rosa sniðugt. Núna hafa þeir tíma til að ná sér niður og síðan þurfa þeir að standa undir því að vera landsliðsmenn og halda áfram með sína frammistöðu.” Nýliðarnir og liðsfélagarnir í FH, Jón Þórarinn og Jón Bjarni verða í eldlínunni í kvöld þegar Valur og FH mætast í þriðja leik úrslitaeinvígisins í Valsheimilinu klukkan 19:30. Staðan er jöfn í einvíginu 1-1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.