Gunnar Hrafn Pálsson gekk á röðunum í raðir nýliða Víkings frá uppeldisfélagi sínu Gróttu en bæði Víkingur og Grótta börðust um efsta sætið í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð. Þar hafði Víkingur betur á betri úrslitum í innbyrðisviðureignum liðanna og tryggði þar með sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Grótta tapaði hinsvegar gerði Herði í undanúrslitum umspilsins og leikur í Grill66-deildinni aftur á næstu leiktíð. ,,Tilfinningin er mjög góð og er virkilega spenntur fyrir komandi tímum með nýju liði. Ég var með nokkra valkosti á borðinu en eftir nokkur spjöll við Aðalstein leist mér mjög vel á hann sem þjálfara og stefnuna þeirra sem félag." Gunnar Hrafn var í algjöru lykilhlutverki í liði Gróttu í vetur og var markahæsti leikmaður liðsins með 127 mörk. ,,Persónulega var frábært að eiga loksins meiðsla laust tímabil og spila mikinn handbolta eftir erfið meiðsli undanfarin ár en niðurstaðan var mjög mikil vonbrigði, markmiðið var að vinna deildina sem tapast á innbyrðis viðureign. Næsta markmið var að vinna umspilið sem tapast eftir tvíframlengdan leik. Stiga söfnunin á tímabilinu var góð en mér fannst spilamennskan okkar oftar en ekki vera undir pari." Hann segir að það hafi vel komið til greina að vera áfram hjá Gróttu en hafi ákveðið að taka skrefið í Olís-deildina. ,,Mér leið mjög vel í Gróttu og hefði líklega verið áfram ef hlutirnir hefðu þróast öðruvísi. Ég stefni hinsvegar á að vera mikilvægt púsl sem hjálpar Víking að ná sýnum markmiðum," sagði nýjasti leikmaður Víkings, Gunnar Hrafn Pálsson í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.