
Adam Haukur Baumruk hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið á dögunum. Adam Haukur sem er fæddur árið 1994 lék allan sinn feril með Haukum þar sem hann lék einnig upp alla yngri flokka. Adam er sonur goðsagnarinnar, Petr Baumruk sem lék með Haukum á sínum tíma. Meiðsli hafa haft áhrif á spil mínútur Adams undanfarin ár þar sem hann hefur einbeitt sér að varnarleik í liði Hauka. Hann varð bikarmeistari með Haukum á tímabilinu en hann var einnig bikarmeistari með liðinu síðast þegar Haukar urðu bikarmeistarar tímabilið 2013/2014. Þá var hann Íslandsmeistari með Haukum 2013/2014 og 2014/2015 auk þess að vinna deildina þrívegis. ,,Ég hef ákveðið að segja það gott og er hættur," sagði Adam í samtali við Handkastið. Síðasti leikur Adams á ferlinum var gegn nágrönnunum í FH í oddaleik undanúrslitanna sem FH unnu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.