Gunnar Bragi Reimarsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Handknattleiksdeild Þórs. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Gunnar er ungur uppalinn Þórsari fæddur árið 2010. ,,Hann spilar með öflugu liði 4. flokks Þórs í stöðu leikstjórnanda ásamt því að standa í hjarta varnarinnar en einnig er hann fjórði markahæsti leikmaður í efstu deild 4. flokks en hann hefur skorað 132 mörk í 17 leikjum í vetur. Nú fer Gunnar að taka sín fyrstu skref með meistaraflokk Þórs en ljóst er að framtíðin er björt hjá þessum efnilega leikmanni," segir í tilkynningunni frá Þór en það er ekki á hverjum degi sem leikmenn á hans aldri skrifa undir leikmannasamninga sem tilkynntir eru á samfélagsmiðlum félaganna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.