
Hjónin, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Leó Snær Pétursson hafa framlengt samningum sínum við HK og leika með liðinu í Olís-deildum karla og kvenna á næstu leiktíð. HK tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. ,,Það er okkur í HK mikið ánægjuefni að tilkynna að Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og Leó Snær Pétursson hafa endurnýjað samninga sína við handknattleiksdeild HK." Valgerður Ýr lék stórt hlutverk með liði HK í Grill66-deildinni í vetur er liðið vann deildina og vann sér þátttökurétt í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Valgerður sneri aftur í leikmannahóp HK fyrir tímabilið eftir þriggja ára frí frá handboltanum. ,,Valgerður átti mjög stóran þátt í því að liðið tryggði sér sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili. Hún er frábær leikstjórnandi sem hefur spilað yfir 200 leiki með HK og einn allra reynslumesti leikmaður liðsins," segir í tilkynningunni frá HK. Valgerður og Leó eru HK-ingum vel kunnug en þau eru bæði uppalin hjá félaginu og lék upp alla yngri flokka félagsins. ,,Leó Snær spilaði upp alla yngri flokkana með HK, byrjaði meistaraflokksferilinn hjá okkur og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2012. Síðan þá hefur hann spilað með HK Malmo, Stjörnunni og Aftureldingu en fyrir tveimur árum kom hann aftur heim í HK. Leó Snær er mjög reynslumikill hægri hornamaður sem við erum sérstaklega ánægð með að hafa áfram í okkar röðum."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.