Þrír leikir fóru fram í Svíþjóð í kvöld en þar héldu undanúrslitin í úrslitakeppninni áfram en tveir leikir fóru fram karla megin á meðan einn var spilaður í kvennadeildinni. Rétt eins og í fyrsta leik liðanna lauk leik tvö milli Skara og Önnereds með sigri gestaliðsins með naumasta mun en í þetta sinn vann Önnereds með einu marki, lokatölur á heimavelli Skara urðu 25-26. Staðan í einvíginu er því orðin 1-1 eftir að Skara vann með einu marki á heimavelli Önnereds. Lena Margrét Valdimarsdóttir átti erfitt uppdráttar í kvöld en hún klikkaði á báðum skotum sínum og gaf tvær stoðsendingar. Það sama var upp á teningnum hjá Kristianstad sem töpuðu í annað sinn eftir framlengingu gegn Alingsås, en í þetta sinn urðu lokatölurnar 37-35 fyrir heimamenn. Staðan er því orðin 2-0 fyrir Alingsås sem verða teljast óvænt tíðindi en Kristianstad eru deildarmeistarar á meðan Alingsås endaði í fimmta sæti deildarinnar. Einar Bragi Aðalsteinsson átti fínan leik fyrir gestina en hann skoraði sex mörk úr átta skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk tvær brottvísanir að auki. Næsti leikur liðanna fer fram á laugardaginn þar sem Kristianstad verða vinna til að halda tímabilinu hjá sér gangandi. Sävehof fékk stóran skell á heimavelli í kvöld en gestirnir í Malmö unnu tólf marka sigur í Partille Arena, lokatölurnar urðu 27-39 og eru Malmö því líka komnir 2-0 yfir í einvíginu. Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum þar af eitt mark úr víti, gaf fjórar stoðsendingar og fékk tvær brottvísanir að auki. Sävehof verða vinna næsta leik liðanna sem fram fer í Malmö á sunnudaginn. Úrslit kvöldsins: Skara 25-26 Önnereds Alingsås 37-35 Kristianstad Sävehof 27-39 Malmö

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.