
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - ÍBV (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: Valur Fyrsti leikur í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Það er viðeigandi að liðin í fyrsta og öðru sæti deildinnar mætist í úrslitaeinvíginu. ÍBV varð fyrir mikilli blóðtöku þegar Amelia Fröland sleit krossband undir lok leiksins gegn Haukum í undanúrslitum. Ég taldi möguleika ÍBV góða fyrir þessi meiðsli en staðan er orðin allt önnur. Valur mun því miður fara þægilega í gegnum þennan fyrsta leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.