Andri Rúnars glímir við þrálát meiðsli
Kristinn Steinn Traustason

Andri Már Rúnarsson leikmaður HC Erlangen í þýsku Bundesligunni hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins í síðustu tveimur deildarleikjum. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni í Þýskalandi og stefnir Andri Már á að ná að snúa til baka áður en tímabilinu lýkur.

Andri Már gekk í raðir Erlangen í sumar frá Leipzig en liðið situr í 14.sæti deildarinnar með 19 stig að loknum 30 leikjum. Liðið hefur tapað þremur síðustu leikjum sínum og nú síðast gegn botnliði Leipzig.

Hvorki Andri Már né Viggó Kristjánsson voru með í tapinu gegn Leipzig vegna meiðsla.

,,Ég hef misst af síðustu tveimur leikjum og á undan þeim leikjum tók ég bara vítin en gat ekki tekið mikinn þátt i leiknum sjálfum. Í raun og veru hef ég því misst af síðustu fjórum leikjum," sagði Andri í samtali við Handkastið en hann er að glíma við þrálát nárameiðsli.

,,Nárinn er buinn að vera stríða mér núna mikið í vetur og hef ég tekið nokkra leiki og spilað á þessu en þetta hefur versnað með hverjum leiknum þangað til að núna þá var þetta orðið of mikið og ég gat ekki beitt mér eins og ég vill," sagði Andri sem segir markmiðið núna vera að hvíla og ná sér 100%.

,,Það er engin ákveðinn tímarammi á endurkomunni en við erum bara reyna horfa á leik frá leik en ég er á fullu að vinna í þessu þessar vikunnar," sagði Andri sem bætti við að hann stefni á endurkomu í lokaumferðunum.

Andri Már var ekki í landsliðshóp Íslands sem valinn var í komandi verkefni en Ísland leikur tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum um miðjan maí mánuð í Kaíró í Egyptalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top