Veszprem vann 36 klukkustundum eftir Meistaradeildarleik
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)

Veszprem hélt sigurgöngu sinni áfram í ungversku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið vann öruggan 41-34 á Carbonex-Komló.

Bjarki Már Elísson var á sínum stað í liðið Veszprem í leiknum og skoraði 5 mörk. Veszprem eru á toppi deildinnar með sjö stiga forskot á Pick Szeged þegar 2 umferðir eru eftir. Liðin eiga svo eftir að mæta í einvígi um ungverska meistaratitilinn líkt og undanfarin ár.

Það sem var áhugavert við leikinn í gær að hann fór fram einungis tæpum 36 klukkustundum eftir að Veszprém vann Fusche Berlín í Meistaradeildinni á fimmtudagskvöldið svo hvíldin fyrir leikin var ekki mikil en það kom þó ekki að sök.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top