

Bandaríski landsliðsmaðurinnn Sigurður Jefferson Guarino gekk á dögunum í raðir Hauka frá HK og leikur því með Haukum í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Sigurður hefur leikið með uppeldisfélagi sínu HK allan sinn feril. ,,Ég er mjög spenntur og hlakka til. En það getur líka hreyft við manni að fara í stórar breytingar eins og þessar eru fyrir mig og það hefur tekið mig smá tíma að melta þetta allt. En ég er gríðarlega spenntur fyrir tækifærunum og þeim áskorunum og verkefnum sem við munum takast á við á næstunni," sagði Sigurður í samtali við Handkastið aðspurður að því hvernig tilfinningin væri að vera kominn í Hauka. ,,Það kom vel til greina að vera áfram með HK, það er frábært félag, með öflugu fólki og góðu umhverfi, en það kom að þeim tímapunkti hjá mér að ég vildi fylgja innsæi mínu, sem ég hef alltaf reynt að gera, og skora sjálfan mig í nýjum aðstæðum." ,,Það var margt sem spilar inn í ákvörðun mína að fara í Hauka. En sem íþróttamaður er ég alltaf að leita að leiðum til að þroskast, skora á sjálfan mig og þróa mig sem leikmann og mér fannst ég vera kominn að þeim tímamótum að vilja breyta til og taka næstu skref. Haukar pössuðu vel við hugmyndafræði mína. Ég sé tækifæri í því að ég geti komið sterkur inn í hópinn og látið gott af mér leiða. Á sama tíma og ég held áfram að þróa minn leik." HK tapaði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins 2-0 gegn Val og endaði í 8.sæti deildarinnar. Hvernig gerir hann upp tímabilið sem var að klárast hjá HK? ,,Ég er mjög stoltur af því sem við höfum náð að afreka í HK síðustu ár. Það voru hæðir og lægðir, eins og með flest tímabil, en við komumst í úrslitakeppnina annað árið í röð sem er ekki sjálfgefið. Í heildina séð er ég ánægður með mitt framlag og að ég hef á hverju tímabili bætt mig - og ég ætla að halda þeirri vegferð áfram." En hvernig sér hann fyrir sér hlutverkið hjá Haukum? ,,Ég er þannig leikmaður að ég vil fá ábyrgð og elska að spila fyrir eitthvað stærra en sjálfan mig. Ég myndi segja að ég sé jafn sterkur karakter og ég er sem leikmaður og tel að þannig geti ég líka styrkt liðið á ákveðin hátt. Ég býð upp á margt bæði varnarlega og sóknarlega sem mun vonandi nýtast vel. En ekkert er sjálfgefið þannig að næstu mánuðir hjá mér fara í að vinna mér inn fyrir stóru hlutverki hjá Haukum fyrir næsta tímabil."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.