Goðsögnin Katrine Lunde snýr óvænt aftur á parketið
Attila KISBENEDEK / AFP)

Það bjuggust fáir við þvi að handboltagoðsögnin Katrine Lunde myndi mæta aftur á parketið en það hefur þó raungerst. Hún hefur nefnilega verið skráð leikmaður hjá Randesund sem er á leið í umspilsbaráttu um sæti í norsku 1. deildinni.
Endurkoma Lunde vekur gríðarlega athygli í handboltaheiminum. Lunde er 46 ára gömul og hefur verið án félags síðan í janúar, þegar samningur hennar við Rauðu Stjörnuna í Belgrad rann út. Síðan þá hefur hún aðallega starfað sem markmannsþjálfari hjá Randesund en nú hefur hún verið skráð sem leikmaður á ný.
Nafn hennar birtist óvænt á leikskýrslu fyrir leik gegn Byåsen, þar sem mikið er undir. Randesund tryggði sér sæti í umspili um sæti í 1. deild og virðist ætla að nýta alla reynslu sem völ er á í baráttunni um sæti ofar.
Það sem gerir söguna enn betri er að tvíburasystir hennar, Kristine Lunde-Borgersen, er í þjálfarateyminu. Þetta er því hálfgerð fjölskylduverkefni á lokakafla tímabilsins.

Lunde lék síðast með norska landsliðinu í apríl og var talið að það væru hennar síðustu leikir á ferlinum. En nú er ljóst að hún á enn eftir að skrifa fleiri kafla í einstökum ferli sínum.
Hvort hún stígur inn á völlinn á ný á eftir að koma í ljós – en eitt er víst bara það að hún sé aftur komin á leikskýrslu er stórfrétt í kvenna handboltanum.
Lunde hefur ekki tjáð sig opinberlega um endurkomuna, en skilaboðin eru skýr: hún er ekki alveg hætt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top