Oddaleikur framundan hjá landsliðsstelpunum
SVEN SIMON /AFP)

Íslensku stelpurnar í Bloomberg-Lippe og liðsfélagar þeirra eru á leið í oddaleik í undanúrslitaeinvíginu gegn Thuringer um þýska meistaratitilinn í handbolta.

Það var ljóst eftir að þær töpuðu 29-28 gegn Thuringer í kvöld.

Bloomberg-Lippe unnu fyrsta leikinn með sex mörkum og fá tækifæri til að hefna fyrir tapið í kvöld í oddaleik síðar í vikunni.

Andrea Jacobsen var markahæst hjá Bloomberg-Lippe í kvöld með fimm mörk, Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði fjögur og Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði tvö mörk.

Bloomberg-Lippe eru ríkjandi deildarmeistarar í þýska boltanum og verða því að þykja sigurstranglegri fyrir oddaleikinn sem fer fram á heimavelli þeirra.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top