
Íslandsmeistarabikarinn gæti farið á loft í Kaplakrika í kvöld þegar FH tekur á móti Val. Valur leiðir í einvíginu 2-1 en allir sigrarnir í einvíginu hafa komið á heimavelli. Leikurinn hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Arnór Snær Óskarsson sem gekk til liðs við Val á miðju tímabili frá norska félaginu Kolstad hefur verið lykilmaður í sóknarleik Vals í allan vetur. Hann hefur verið meðal markahæstu leikmanna Vals í öllum fyrstu þremur leikjum einvígsins og samtals hefur hann skorað 21 mark í leikjunum þremur. ,,Ég er mjög spenntur. Við erum vel undirbúnir og ætlum okkur að vinna í kvöld," sagði Arnór Snær í samtali við Handkastið. Eins og fyrr segir hafa leikirnir unnist á heimavelli hingað til, hefur heimavöllurinn svona mikið að segja? ,,Já ég hugsa að það geti alveg skipt máli en erum ekki að pæla mikið í því. Við mættum ekki tilbúnir seinast í Kaplakrika og ætlum okkur að gera betur en þegar við spiluðum þar seinast." Það er ljóst að Íslandsmeistarabikarinn verður í Kaplakrika í kvöld. Ætli það hafi áhrif á leikmenn Vals vitandi hvað er undir? ,,Hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli þegar þú ert kominn í úrslitin og auðvitað vitum við hvað er undir. En við nálgumst þennan leik bara eins og við höfum gert í hinum leikjunum og svo sjáum við bara hvað gerist." ,,Ég vonast til að sjá sem alla Valsara í rauðu í stúkunni og styðja við bakið á okkur," sagði Arnór Snær að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.