Garðar Ingi Sindrason gæti leikið sinn síðasta leik fyrir FH í langan tíma en hann gengur í raðir þýska stórliðsins Gummersbach í sumar frá FH. FH er 1-2 undir í úrslitaeinvíginu gegn Val en liðið tekur á móti Val í Kaplakrika í kvöld klukkan 19:30. ,,Mér líst mjög vel á leikinn, það er mikil tilhlökkun í hópnum og við ætlum okkur að mæta einbeittir og klárir frá fyrstu mínútu," sagði Garðar Ingi í samtali við Handkastið en hann hefur verið einn allra besti leikmaður FH á tímabilinu. Allir leikir í einvíginu hingað til hafa unnist á heimavelli. ,,Auðvitað gefur heimavöllurinn eitthvað extra, Krikinn hefur reynst okkur vel í gegnum tíðina og þar líður okkur vel." En hvað þarf FH að gera betur heldur en í síðasta leik þar sem Valur hafði betur? ,,Vörn og markvarsla þarf að tikka vel saman, svo þurfum að halda vel í boltann og hlaupa vel heim," en Valsarar treysta mikið á hraðan leik og hraðarupphlaup. Ertu með einhver skilaboð til FH-inga í lokin? ,,Fjölmennum í Krikann í hvítum treyjum og tryggjum okkur oddaleik saman!"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.