Uppselt á oddaleikinn!
Sævar Jónasson

Uppselt er á oddaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn á fimmtudaginn. Miðasala hófst kl. 12:00 í hádeginu og eru nú allir miðar farnir út.

N1 höllin að Hlíðarenda verður því troðfull þegar annað hvort þessara liða lyftir þeim stóra.

Miðarnir á oddaleikinn gjörsamlega ruku út og var orðið uppselt FH megin einungis korteri eftir að miðasalan opnaði. Það er því ljóst að það er gríðarleg stemning fyrir þessum oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top