Norðurlöndin: Drammen sló út Elverum
Savehof

Það var nóg um að vera í kvöld á Norðurlöndunum en það urðu heldur betur óvænt úrslit í Noregi og síðan er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitum í kvennadeildinni í Svíþjóð og Kristianstad tryggði sér oddaleik.

Annar leikur Elverum og Drammen fór fram í kvöld á heimavelli Drammen en heimamenn voru óvænt 1-0 yfir í einvíginu og því var ljóst að Elverum þyrfti sigur til að þvinga oddaleik. Drammen hins vegar komu öllum á óvart og unnu með naumindum, 33-32 urðu lokatölurnar og Drammen því komið í úrslit þar sem liðið mætir Kolstad eða Bergen. Elverum sem urðu deildarmeistarar eru því fallnir úr leik og í fyrsta sinn í 16 ár sem liðið kemst ekki í úrslitin. Ísak Steinsson kom inn á í markið á tímabili og varði tvö skot af tíu eða 20% markvarsla. Tryggvi Þórisson fékk eina brottvísun og klikkaði báðum skotum sínum fyrir gestina.

Kristianstad tryggði sér oddaleik í undanúrslitunum í Svíþjóð þegar liðið vann Alingsås eftir framlengdan leik, 33-36. Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik fyrir gestina frá Kristianstad en samkvæmt einkunnagjöf sænsku deildarinnar var hann næstbesti maður liðsins, hann skoraði sjö mörk úr tíu skotum, gaf eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun.

Að lokum er orðið klárt hvaða lið mætast í úrslitum í kvennadeildinni í Svíþjóð en Íslendingaliðin Sävehof og Skara tryggðu sig bæði inn í úrslitin með sigri í kvöld.

Sävehof vann þægilegan tíu marka sigur á Höör, 34-24 en Elín Klara Þorkelsdóttir átti flottan leik fyrir heimakonur, hún skoraði níu mörk úr þrettán skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki. Sävehof vann einvígið 3-0.

Skara verður andstæðingur Sävehof en þær unnu Önnereds á heimavelli í kvöld, 23-19 og unnu því einvígið 3-1. Lena Margrét Valdimarsdóttir hafði hægt um sig í kvöld og klikkaði á eina skotinu sínu en gaf tvær stoðsendingar.

Úrslit kvöldsins:

Drammen 33-32 Elverum

Alingsås 33-36 Kristianstad

Sävehof 34-24 Höör

Skara 23-19 Önnereds

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top