

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður bikarmeistara Hauka segir það vel koma til greina að halda áfram með liðinu í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Aron Rafn sem verður 37 ára í september lagði skóna á hilluna fyrir síðustu leiktíð en snerist hugur þegar uppeldisfélagið var í markmannsvandræðum vegna meiðsla Vilius Rasimas sem á endanum þurfti að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Aron Rafn dró því handboltaskóna fram úr hillunni rétt fyrir tímabilið og átti stórgott tímabil og reyndist vera einn besti markvörður Olís-deildarinnar. Aron Rafn var meðal 35 leikmanna á EM lista Snorra Steins fyrir Evrópumótið í janúar og þá varð hann bikarmeistari með Haukum á tímabilinu. ,,Ég er ekki búinn að taka ákvörðun um framtíðina. Ég ætla gefa þessu einhverjar vikur áður en ég tek ákvörðun með það. Mér fannst ég hafa ennþá eitthvað fram að færa á gólfinu en ég þarf að sjá hvað líkaminn segir því hann er orðinn ansi lúinn," sagði Aron Rafn í samtali við Handkastið aðspurður hvort skórnir væru farnir á hilluna. Grétar Ari Guðjónsson gekk í raðir Hauka í janúar og myndaði sterkt markvarðarpar með Aroni Rafni eftir áramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.