Magnús Óli Magnússon leikmaður nýkrýnda Íslandsmeistara Vals sagði í viðtali við Hörð Magnússon í Sjónvarpi Símans eftir sigurinn gegn FH í kvöld að allar líkur væri á því að þetta hafi verið hans síðasti leikur á ferlinum. ,,Það er 95% líkur á því að þetta hafi verið minn síðasti leikur. Þetta eru blendnar tilfinningar en mjög góðar. Ég er með æðislegar tilfinningu eins ógeðsleg og hún var í allan dag, ég er í smá geðshræringu. Það er best að fara í frí sem meistari," sagði Magnús Óli í viðtalinu í Sjónvarpi Símans eftir leikinn. Magnús Óli benti á að hann væri að renna út af samningi hjá Val og hann ætlaði sér að taka sér frí í sumar, hann væri með nóg af börnum heima og nú tæki annað við. Magnús Óli gekk í raðir Vals sumarið 2017 og var að ljúka sínu níunda tímabili hjá Val en hann er uppalinn hjá FH en gekk í raðir Vals frá Ricoh í Svíþjóð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.