

Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals var að vonum kampa kátur í leikslok eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta ári sem þjálfari karlaliðs Vals. Hann er því handhafi bæði Íslandsmeistaratitils karla og kvenna en hann varð Íslandsmeistari með kvennalið Vals á síðustu leiktíð. Valur vann oddaleik úrslitaeinvígisins gegn FH fyrir framan troðfullt Valsheimili 27-26 í gærkvöldi þar sem síðustu mínútur leiksins buðu upp á mikla spennu. ,,Mér líður auðvitað gríðarlega vel. Þetta var mjög erfiður leikur. Við byrjuðum mjög vel og það var mjög sterkt og vorum orkumiklir og varnarleikurinn var mjög góður. Við náðum að keyra vel á þá en síðan fannst mér við vera klaufar að vera ekki meira yfir í hálfleik. Þeir komu með gott áhlaup í upphafi seinni hálfleiks og voru stórhættulegir. Miðað við hvernig þetta þróaðist í seinni hálfleik þá var þetta annað hvort stöngin inn eða stöngin út og sem betur fer var þetta stöngin inn hjá okkur," sagði Ágúst í viðtali við Handkastið eftir leik. Valur náði sex marka forystu undir lok fyrri hálfleiks en FH-ingar náðu síðan góðu áhlaupi. ,,Við vorum komnir sex mörkum yfir og mér fannst miög skrítinn dómur þegar Þorvaldur er dæmdur lentur og síðan fáum við ódýrar tvær mínútur. FH nær okkur niður í fjögur mörk. Síðan byrja þeir einum fleiri og þeir leistu það mjög vel í dag, betur en í þessu einvígi. Síðan sýndum við mikinn karakter og styrk. Ég er mjög stoltur af strákunum." Þrátt fyrir litla markvörslu í seinni hálfleik hafði Ágúst litlar áhyggjur af því í leiknum. ,,Ég held að Bjöggi hafi varið einhverja þrjá bolta, þannig ég held að tölfræðin sé ekki alveg rétt en ég hafði alltaf trú á Bjögga og hef alltaf trú á honum. Þó svo að hann sé ekki alltaf að verja endalaust af boltum þá horfi ég líka í það að hann er gríðarlega fljótur að koma boltanum í leik og það er enginn betri en hann í því. Ég hafði ekki áhyggjur af markvörslunni." En hvernig gerir hann upp tímabilið? ,,Ég er mjög ánægður og sáttur með tímabilið. Við erum Íslands- og deildarmeistarar. Liðið er að þróast í góða átt, við erum bæði með unga og mjög efnilega stráka sem eru í fínum hlutverkum ásamt því að vera með eldri og reyndari leikmenn. Ég er með frábært þjálfarateymi sem er að starfa með mér. Við höldum áfram af fullum krafti á næsta ári." Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.