
Sigursteinn Arndal þjálfari FH var að vonum svekktur eftir eins marks tap FH gegn Val í oddaleik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn sem fram fór í Valsheimilinu í gær fyrir framan troðfullar áhorfendastúkur. Valur leiddi í hálfleik 16-12 en lokatölur 27-26 þar sem FH fékk tækifæri að jafna í lokasókninni en mistókst ætlunarverk sitt og tap niðurstaðan. ,,Þetta er gríðarlegt svekkelsi. Við töpuðum í hörku einvígi og ég vil byrja á því að óska Val til hamingju. Þeir stóðu sig frábærlega. Þetta var magnað einvígi og ótrúlega stutt á milli tveggja góðra liða," sagði Sigursteinn í viðtali við Handkastið eftir leik. ,,Eins svekktur og ég er með hvernig við mættum til leiks þá er ég jafn stoltur að því hvernig liðið brást við. Liðið steig upp og sýndi karakter og sýndi þá lágmarksframmistöðu sem þú getur sýnt fyrir framan svona fjölda áhorfenda og það sem var í boði. Við komum vel upp í seinni hálfleik og ég er ánægður með, hvað það varðar," sagði Sigursteinn að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.