Magnús Óli Magnússon leikmaður Vals átti frábæran leik í gær þegar Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitlinn eftir eins marks sigur gegn FH í oddaleik úrslitaeinvígisins. ,,Þetta er frábær tilfinning en blendnar tilfinningar á sama tíma. Við vinnum þetta gegn mínu uppeldisfélagi og maður er í geðshræringu. Þetta er geðveikt, þetta er frábært og maður er ennþá að reyna átta sig á þessu. Ég ætla drífa mig inn í klefa og fá mér einn kaldann og síðan get ég náð aðeins áttum," sagði Magnús Óli sem missti af síðasta leik liðanna í Kaplakrika vegna höfuðhöggs sem hann fékk í þriðja leik liðanna. Hvenær vissi hann að hann væri að fara spila leikinn í gær? ,,Ég prófaði á þriðjudaginn að hjóla og skokka og síðan prófaði ég aðeins meira daginn eftir og fékk engan hausverk og engin einkenni. Síðan fékk ég grænt ljós frá lækni og þá ákvað ég að kíla á þetta." Magnús Óli var að klára sitt níunda tímabil hjá Val en hann er uppalinn hjá FH. Hvernig er tilfinningin að vinna uppeldisfélagið í oddaleik? ,,Ég er búinn að vera með ógeðis tilfinningu í maganum í allan dag en hún hefur breyst núna í sælu tilfinningu. Ég er ekkert eðlilega ánægður með alla í liðinu, stuðningsmennina og allt þetta batterí." En var þetta hans síðasti leikur á ferlinum? ,,Ég er að skoða þetta. Ég er að renna út af samningi og ég ætla að vera í fríi í sumar og síðan sé ég til eftir sumarið," sagði Magnús Óli í viðtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.