
Íslands- og deildarmeistarinn, Arnór Snær Óskarsson leikmaður Vals sagði í viðtali í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á fimmtudagskvöldið að hann stefndi á að fara aftur út í atvinnumennsku. Arnór Snær gekk óvænt í raðir Vals á miðju tímabili frá norska félaginu Kolstad og hefur verið besti leikmaður Vals á tímabilinu. ,,Ég stefni á að fara aftur út en ég vil ekki fara bara eitthvað og í eitthvað lélegt. Það verður bara að koma í ljós en ég stefni á að fara út," sagði Arnór Snær í viðtali eftir sigur Vals á FH, 27-26 í oddaleik úrslitaeinvígisins. Arnór Snær var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. Arnór Snær gekk í raðir þýska stórliðsins, Rhein Neckar Löwen sumarið 2023. Tækifærin voru ekki mörg hjá Lowen og var hann lánaður til Gummersbach. Í kjölfarið gekk hann síðan í raðir Kolstad áður en hann skipti yfir til Vals í lok október á síðasta ári.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.