Íslands- og deildarmeistarinn, Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur samið við pólska félagið GE Wybrzeże Gdansk og gengur hann til liðs við félagið í sumar. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Þorvaldur fór til Póllands í byrjun árs á reynslu hjá félaginu og fékk í kjölfarið samningstilboð frá pólska liðinu en liðið endaði í 4.sæti pólsku úrvalsdeildarinnar með 48 stig, stigi á eftir 3.sætinu. Þorvaldur varð í gær Íslandsmeistari með Val eftir sigur gegn FH 27-26 í oddaleik úrslitaeinvígisins. Skoraði Þorvaldur þrjú mörk í leiknum og lét til sín taka í vörninni. Þorvaldur sem er fæddur árið 2004 er uppalinn hjá Val og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin tvö tímabil. Greinilegt er að miklar breytingar verða á liði Vals á milli tímabila en Magnús Óli Magnússon, Róbert Aron Hostert og Agnar Smári Jónsson eru allir að renna út af samningum hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.