Hefur lofað Gumma að spila einn leik með ÍBV B
Baldur Þorgilsson

Róbert Aron Hostert sagði í viðtali við Sjónvarp Símans eftir að hafa tryggt sér enn einn Íslandsmeistaratitilinn að nú sé ferli hans lokið hjá Val. Róbert Aron gekk í raðir Vals frá ÍBV sumarið 2018 og var því að klára sitt áttunda tímabil með félaginu.

Róbert Aron sem er uppalinn hjá Fram hefur orðið Íslandsmeistari með Fram, ÍBV og Val á ferlinum.

,,Tilfinningin er ólýsanleg en auðvitað mjög góð," sagði Róbert í viðtalinu við Sjónvarp Símans í gær og tók það fram að hann væri nú að hætta.

,,Ég lofaði Gumma að spila einn leik með ÍBV B, ég er allavegana hættur í Val. Þetta er rosalega sætt að enda þetta svona. Tilfinningin er rosalega góð."

,,Við vorum rosalega góðir í fyrri hálfleik. Við vorum eiginlega með þá en undir lok fyrri vorum við klaufar og leyfum þeim að koma inn í leikinn en það gerir þetta enn sætara að vinna með einu. Þetta eru tvö frábær lið og þetta hefur verið geggjuð rimma. Ég vil taka hatt minn ofan fyrir FH, þetta er búið að vera geggjuð rimma," sagði Róbert Aron ennfremur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top