Í þætti Handkastsins á dögunum var farið yfir fyrstu ótímabæra spánna fyrir Olís-deild karla á næstu leiktíð. Í umræðunni um nýliða Víkings sagði Stymmi klippari frá því að samkvæmt heimildum Handkastsins væri Elvar Otri Hjálmarsson á leið í Safamýrina. ,,Þeir eru eitthvað að styrkja sig. Við höfum eitthvað heyrt af því að Elvar Otri sé líklega á leið í Víking frá ÍR," sagði Stymmi klippari. Elvar Otri gekk í raðir ÍR frá Gróttu fyrir síðustu leiktíð og hefur því fallið úr Olís-deildinni síðustu tvö tímabil. Elvar Otri skoraði 43 mörk fyrir ÍR í Olís-deildinni í vetur en liðið endaði í neðsta sæti Olís-deildarinnar og leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð. Víkingur hefur fengið einn leikmann frá síðasta tímabili en Gunnar Hrafn Pálsson gekk í raðir félagsins frá Gróttu á dögunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.