Jón Ómar Gíslason sem gekk í raðir Hauka fyrir síðustu leiktíð og var að klára sitt fyrsta tímabil á Ásvöllum hefur yfirgefið félagið en Haukar greindi frá því í síðustu viku. Rætt var um stöðu Jón Ómars í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Jón Ómar var leystur undan samningi hjá Haukum á dögunum og það ætti heldur betur að opna dyrnar fyrir því að Þráinn Orri fái nýjan samning á Ásvöllum. Passar Jón Ómar ekki bara eins og flís við rass að hann fari upp í Kór?" velti Stymmi klippari því upp og beindi orðunum til Davíðs Más Kristinssonar eins af gestum þáttarins. ,,Það er allavegana enginn Sigurður Jefferson lengur hjá félaginu og Jón Ómar gæti klárlega hjálpað HK. Það er spurning hvort Halldór Jóhann hjóli í hann," svaraði Davíð Már. Sigurður Jefferson gekk á dögunum í raðir Hauka frá HK en Tómas Bragi Starrason línumaður Gróttu síðustu tveggja ára hefur samið við HK. Handkastið hefur reynt að heyra í Jóni Ómari sem ekki hefur viljað tjá sig um sína stöðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.