
Ólafur Brim Stefánsson verður ekki áfram í herbúðum ítalska félagsins, Fasano eftir hálft ár hjá félaginu. Ólafur gekk í raðir Fasano um áramótin eftir að hafa leikið með Stjörnunni fyrir áramót í Olís-deildinni. Þar áður lék hann með Herði á Ísafirði í Grill66-deildinni eftir stutta dvöl í Kúwait. Fasano er úr leik í ítölsku úrslitakeppninni eftir að hafa tapað einvíginu gegn deildarmeisturum Cassano 2-0 en Fasano endaði í 4.sæti deildarinnar. ,,Ég ákvað að halda ekki áfram hjá félaginu þrátt fyrir að hafa fengið nýtt samningstilboð frá þeim. Ég er því núna að skoða ný tækifæri fyrir næsta tímabil. Það er kominn áhugi frá nokkrum liðum og nú er ég bara að meta möguleikana áður en ég tek ákvörðun,” sagði Ólafur Brim í samtali við Handkastið. ,,Það var mjög góð reynsla að spila á Ítalíu og ég lærði helling bæði innan vallar og utan. Deildin er sterk og það var gaman að fá að upplifa annað umhverfi og annan handbolta. En þegar tímabilinu lauk fann ég bara að það væri rétt fyrir mig að skoða önnur tækifæri fyrir næsta tímabil. Ég fékk tilboð um að vera áfram en ákvað að fara aðra leið og meta aðra möguleika sem henta mér betur á þessum tímapunkti,” sagði Ólafur að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.