
Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið HH Elite frá og með næsta tímabili. Katrín Tinna gekk í raðir ÍR í janúar 2024 eftir hálfs árs dvöl hjá Skara í Svíþjóð. Þar á undan lék hún með Volda í Noregi. Katrín hefur verið algjör lykileikmaður ÍR þann tíma sem hún var hjá félaginu og hefur hún nú fest sig í sessi sem landsliðsmaður. HH Elite endaði tímabilið núna í 7. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Katrín sagðist í samtali við liðið vera spennt fyrir því að klæðast gulu treyjuni og að hún teldi að liðið væri góður staður fyrir sig til þess að þróa sig sem leikmann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.