
Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV var stoltur af sínu liði þrátt fyrir tap gegn Val í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins en Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með sigrinum í kvöld. ,,Ég vil bara byrja að óska Val til hamingju og þakka þeim fyrir seríuna. Þær hafa verið frábærar í vetur og voru frábærar í þessu einvígi. Þær eru verðugir handhafar þessa titils. Ég er hinsvegar alveg ólýsanlega stoltur af mínum stelpum," sagði Magnús í viðtali við Ingvar Örn Ákason í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ,,Ég er ótrúlega þakklátur fyrir stuðninginn og gerir þetta að sennilega skemmtilegasta heimavelli landsins, hlutlaust mat." ,,Auðvitað er þetta svekkjandi og sárt en það er samt mikið stolt á bakvið þetta.” Magnús segir að framtíðin sé björt í Eyjum. ,,Við erum með ungar og mjög frambærilegar stelpur í bland við þessar eldri og reynslu meiri. Þetta er eitthvað sem mun vera uppskriftin af okkar leið næstu árin.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.