Ísak leggur skóna á hilluna
Eyjólfur Garðarsson

Hafnfirðingurinn, Ísak Rafnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en þetta tilkynnti hann á samfélagsmiðlinum, Facebook í gær.

Ísak sem er uppalinn hjá FH og lék þar upp alla yngri flokka félagsins. Hann lék með meistaraflokki félagsins til ársins 2018 þegar hann samdi við aust­ur­ríska félagið Schwaz. Hann lék með Schwaz eitt tímabil þar til hann snéri aftur heim í FH.

Hann lék með FH þar til hann færði sig um set til ÍBV sumarið 2022 og hefur leikið með Eyjamönnum undanfarin ár og varð Íslandsmeistari með liðinu 2023 eftir sigur á Haukum í úrslitaeinvíginu í oddaleik.

Meiðsli hafa haft mikil áhrif á spila mínútur Ísaks með ÍBV síðustu tvö tímabil.

,,Skórnir á hilluna (staðfest). Eftir langan feril, fullt af sigrum, nokkur töp og endalaust af minningum segi ég glaður að nú sé komið gott. Er mjög þakklátur fyrir tímann sem ég átti á parketinu og stoltur af því sem ég hef afrekað," skrifaði Ísak í Facebook færslu sinni.

Ísak lék með öllum yngri landsliðum Íslands á sínum yngri árum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top