
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar U18 ára landsliðs karla hafa tilkynnt hvaða 16 leikmenn munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumótinu í sumar. Keppnin verður haldin í Serbia dagana 29. júlí til 9. ágúst. Kunnugleg nöfn eru í hópnum sem hafa leikið stór hlutverk í Olís-deild karla. Þar ber hæst að nefna leikmenn á borð við Frey Aronsson hjá Haukum, Gunnar Róbertsson hjá Val og Ómar Darra Sigurgeirsson hjá FH sem allir léku stór hlutverk hjá þessum þremur félögum í vetur en Ómar Darri Sigurgeirsson fór fyrir liði FH í úrslitaeinvíginu gegn Val sem Gunnar Róbertsson og liðsfélagar hans í Val unnu. Einnig hefur Morgan Goði Garner verið varamarkvörður ÍBV í vetur og þá hefur Anton Frans Sigurðsson leikið í hægri horni ÍBV. Matthías Dagur Þorsteinsson fékk stærra hlutverk í liði Stjörnunnar þegar leið á veturinn og þá var Patrekur Smári Arnarsson leikmaður ÍR í hlutverki hjá liðinu í vetur þá sérstaklega varnarlega. Þá vekur athygli að hinn 15 ára, Brynjar Narfi Arndal hjá FH er valinn í hópinn en það er ekki oft á þessum árum sem valdir eru yngri leikmenn í U18 ára landslið Íslands. Þrír markmenn eru í hópnum og koma tveir þeirra frá ÍBV, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson, þá er Anton Máni Francisco Heldersson markvörður Vals í hópnum. Þrír leikmenn hafa síðan verið valdir sem varamenn inn í hópinn og munu sennilega æfa með liðinu í aðdraganda keppninnar. Leikmannahópurinn er eftirfarandi : Alex Unnar Hallgrímsson, Fram Anton Frans Sigurðsson, ÍBV Anton Máni Francisco Heldersson, Valur Bjarki Snorrason, Valur Brynjar Narfi Arndal, FH Freyr Aronsson, Haukar Gunnar Róbertsson, Valur Kristófer Tómas Gíslason, Fram Logi Finnsson, Valur Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjarnan Morgan Goði Garner, ÍBV Ómar Darri Sigurgeirsson, FH Patrekur Smári Arnarsson, ÍR Ragnar Hilmarsson, Selfoss Sigurður Atli Ragnarsson, Valur Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV Varamenn Aron Leo Guðmundsson, Selfoss Kári Steinn Guðmundsson, Valur Örn Kolur Kjartansson, ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.