Patrekur framlengir í Kórnum
HK handbolti

Markvörðurinn, ungi og efnilegi, Patrekur Guðni Þorbergsson hefur framlengi samningi sínum við HK til næstu þriggja ára. Þetta staðfesti HK á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Patrekur Guðni gekk í raðir Þórs fyrir síðasta tímabil en sneri aftur til HK um mitt tímabil. Hann fékk tækifæri með HK í Olís-deildinni á þar síðustu leiktíð vegna meiðsla vandræða HK-inga og stóð sig afar vel.

,,Patrekur er uppalinn í HK og er skýrt dæmi um þann grunn sem félagið byggir á. Að sjá leikmann úr eigin röðum halda áfram í HK búningnum skiptir miklu máli fyrir félagið og styrkir enn frekar þá vegferð sem við erum á. Það verður sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Patrek taka næstu skref með HK á komandi árum," segir í tilkynningunni frá HK.

Í gær var greint frá því að markvörðurinn, Róbert Örn Karlsson væri búinn að yfirgefa HK og þá er óvíst hvað verður um Jovan Kukobat.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top