Íslenska karla landsliðið leikur fyrri vináttulandsleik sinn gegn Egyptalandi í Kaíró í dag. Leikurinn hefst klukkan 13:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV. Um er að ræða fyrri vináttulandsleikinn af tveimur en seinni vináttulandsleikurinn fer fram á föstudaginn. Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið 17 manna hóp fyrir leikinn í dag en Elvar Ásgeirsson leikmaður Ribe Esbjerg er utan hóps í leiknum í dag. Ljóst er að Tryggvi Þórisson, Jón Bjarni Ólafsson og Jón Þórarinn Þorsteinn leika sinn fyrsta landsleik í dag en þeir eru allir í leikmannahópnum. Hópur dagsins er eftirfarandi: Markmenn: Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2) Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (118/123) Bjarki Már Elísson, Veszprem (137/445) Einar Bragi Aðalsteinsson, Kristianstad (2/0) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (36/8) Haukur Þrastarsson, Rhein Neckar Löwen (58/80) Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF Håndbold (37/72) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (43/151) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (69/215) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (3/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (88/233) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (58/52) Tryggvi Þórisson, Elverum (0/0) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (27/41)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.