Endurkomusigur Strákanna okkar í Egyptalandi
Kristinn Steinn Traustason

Þrátt fyrir slæma byrjun á seinni hálfleik sneri íslenska landsliðið taflinu sér í vil og vann eins marks endurkomu sigur í fyrri vináttulandsleik sínum gegn Egyptum í Kaíró í dag. Seinni leikur þjóðanna fer fram á föstudaginn.

Viktor Gísli Hallgrímsson var valinn besti leikmaður leiksins af gestgjöfum Egypta en staðan var jöfn 14-14 í hálfleik eftir að Íslandi hafi mest náð þriggja marka forystu í upphafi leiks en heimamenn í Egyptalandi náði aldrei forystu í fyrri hálfleiknum.

Egyptar byrjuðu seinni hálfleikinn hinsvegar töluvert betur og náði snemma fjögurra marka forystu í stöðunni 21-17. Íslenska landsliðið lét það ekki hafa áhrif á sig en eltingarleikurinn skilaði sér í eins marks sigri þegar upp var staðið en Orri Freyr Þorkelsson skoraði 31. mars Íslands úr hraðaupphlaupi og það reyndist sigurmark leiksins. Lokatölur 31-30 en þetta var í fyrsta skipti sem Ísland komst yfir í seinni hálfleik.

Kristján Örn Kristjánsson var markahæstu í liði Íslands með sex mörk en Þorsteinn Leó Gunnarsson og Teitur Örn Einarsson komu næstur með fimm mörk hvor. Jón Bjarni Ólafsson skoraði tvö mörk í leiknum en það voru hans fyrstu mörk fyrir íslenska landsliðið í sínum fyrsta landsleik.

Viktor Gísli stóð í marki Íslands allan leikinn að undanskildu einu vítakasti en hann varði 22 skot og var með 43% markvörslu.

Ahmed Adel var markahæstur í liði Egypta með sex mörk ásamt Ahmed Hesham.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top