

Elín Klara Þorkelsdóttir leikmaður Såvehof og íslenska landsliðsins er í úrvalsliði sænsku úrvalsdeildarinnar. Elín Klara er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku en hún gekk í raðir Såvehof frá Haukum í sumar. Elín Klara fékk 84% atkvæða í valinu um besta miðjumann deildarinnar í kjöri sem birt er á síðunni Handbollsligan Dam. Elín Klara hefur farið á kostum á sínu fyrsta ári en sænskur blaðamaður lýsti Elínu Klöru sem yfirburðarleikmanni í deildinni sem væri alltof góð fyrir deildina. Elín Klara var á meðal markahæstu og stoðsendingahæstu leikmanna deildarinnar. Tímabilinu er ekki lokið hjá Elínu Klöru og samherjum hennar í Såvehof því þær leika til úrslita um sænska meistaratitilinn en liðið mætir Skara í úrslitaeinvíginu sem hefst eftir helgi. Skara eru ríkjandi Svíþjóðar meistarar. Såvehof eru ríkjandi deildarmeistarar á meðan Skara endaði í 3.sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.