
Markahæsti leikmaður Selfoss í Olís-deild kvenna á tímabilinu, Mia Kristin Syverud hefur gengið í raðir norska úrvalsdeildarliðsins, Gjerpen. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni um helgina. Mia Kristin gekk í raðir Selfoss frá norska B-deildarliðinu Aker en hún hafði einnig leikið með Sola í norsku úrvalsdeildinni. Selfoss endaði í neðsta sæti Olís-deildarinnar og féll niður í Grill66-deildina eftir harða fallbaráttu við Stjörnuna. ,,Við erum afar ánægð að tilkynna að Mia Kristin Syverud hefur skrifað undir samning við okkur og við erum mjög ánægð að fá hana í liðið fyrir komandi tímabil," segir í tilkynningunni frá Gjerpen. Mia handleggsbrotnaði í leik með Selfossi í vetur og missti af þremur leikjum í Olís-deildinni en það kom ekki að sök og endaði hún sem markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Systir hennar, Marte Syverud gekk í raðir Selfoss um áramótin og lék með liðinu eftir seinni hluta tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.