
Hinn 29 ára, Petter Grønstad var langt kominn með það að semja við Selfoss um að taka við karla liði félagsins í Olís-deild kvenna þangað til hann fékk boð um að taka við kvennaliði Larvik í norsku úrvalsdeildinni. Petter Grønstad hefur undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari kvennaliðs Sola í norsku úrvalsdeildinni en þar áður þjálfaði hann kvennalið Fjellhammer í norsku 1.deildinni en þar lék hann sjálfur á sínum ferli. Selfyssingar leita logandi ljósi að nýjum þjálfara karlaliðsins eftir að Spánverjinn, Carlos Martin Santos sagði upp samningi sínum sem þjálfari liðsins eftir tvö ár í starfi. Voru Selfyssingar vongóðir um að þeir væru búnir að finna þjálfara á liðið og samkvæmt heimildum Handkastsins var lítið eftir nema bara undirskriftin þegar Petter Grønstad var boðið að taka við kvennaliði Larvik sem heillaði hann greinilega meira heldur en að taka við karlaliði Selfoss. Petter Grønstad kom hingað til lands á þessu tímabili og stýrði meðal annars 3.flokks kvenna æfingu hjá Fjölni og hélt fyrirlestur í Egilshöllinni. Larvik var eitt sinn algjör risi í norskum kvenna handbolta en liðið varð síðast norskur meistari tímabilið 2016/2017. Í endaði liðið í 4.sæti deildarinnar og féll úr leik í undanúrslitum gegn Storhamar.
Þetta herma heimildir Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.