Íslendingaliðið með bakið upp við vegg eftir tap
Timon Peters

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe tapaði með minnsta mun 28-27 fyrir Borussia Dortmund í fyrsta úrslitaleik liðanna um þýska meistaratitilinn í gær.

Leikurinn fór fram í Dortmund þrátt fyrir að Blomberg Lippe hafi orðið deildarmeistari. Næsti leikur fer að minnsta kosti fram á heimavelli Íslendingaliðsins en vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér meistaratitilinn.

Blomberg Lippe leiddi í hálfleik 17-14 eftir að hafa verið 14-9 yfir á tímabili. Blomberg Lippe skoraði fyrsta mark seinni hálfleiksins en þá komu fimm mörk Dortmund í röð og skyndilega voru þær komnar einu marki yfir 19-18.

Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen skoruðu báðar þrjú mörk í leiknum. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk.

Jafnfræði var með á liðunum það sem eftir lifði leiks en þrjú mörk í röð á lokakaflanum gerði Blomberg Lippe lífið leitt og lokatölur 28-27 en Íslendingaliðið minnkaði muninn í eitt mark þegar 30 sekúndur voru eftir.

Næsti leikur liðanna fer fram 24. maí.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top