Jón Brynjar ráðinn hjá Lugi
Lugi

Jón Brynjar Björnsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari sænska kvennaliðsins, Lugi sem leikur í næstu efstu deild í Svíþjóð.

Jón Brynjar tekur við af Mads Lyhne Nielsen sem hætti sem aðstoðarþjálfari Lugi eftir tímabilið.

Lugi endaði í 3.sæti sænsku B-deildarinnar, á eftir Helsingborg og Ystads. Liðið endaði með 31 stig og var fimm stigum á eftir Helsingborg.

Jón Brynjar flutti til Svíþjóðar síðasta sumar vegna fjölskylduaðstæðna en hann þjálfaði kvennalið Aftureldingar áður en hann flutti út og þar áður var hann þjálfaði Víkings í Grill66-deild kvenna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top