
Sävehof tók á móti Skara í kvöld í fyrsta leik liðanna í úrslitum um sænska meistaratitilinn í kvenna en leikið var í Partille Arena í Gautaborg. Íslensku stelpurnar voru að venju með í báðum liðum en Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði fimm mörk úr ellefu skotum og gaf þrjár stoðsendingar á meðan Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk úr sex skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir gestina frá Skara. Heimakonur reyndust ögn sterkari í kvöld og náðu að knýja fram sigur, 25-22 eftir að hafa leitt með tveimur mörkum í hálfleik, 12-10. Næsti leikur liðanna fer fram í Skara, fimmtudagskvöldið næstkomandi en þrjá sigra þarf til að vinna titilinn. Úrslit kvöldsins: Sävehof 25-22 Skara

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.