Lokahóf Hauka – Rakel Oddný og Freyr valin best

Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu tímabilinu. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvaddi félagið nokkra leikmenn sem halda á ný mið.

Verðlaunahafar tímabilsins

Meistaraflokkur kvenna

• Best – Rakel Oddný Guðmundsdóttir
• Mikilvægastar – Embla Steindórsdóttir og Sara Sif Helgadóttir
• Leiðtogi ársins – Alexandra Líf Arnarsdóttir

Meistaraflokkur karla

• Bestur – Freyr Aronsson
• Mikilvægastur – Aron Rafn Eðvarðsson
• Leiðtogar ársins – Össur Haraldsson og Darri Aronsson

U-lið karla

• Mikilvægastur – Daníel Wale Adeleye
• Bestur – Jón Karl Einarsson

Að lokum voru leikmenn í meistaraflokki karla og kvenna sem eru að kveðja félagið kvödd.

"Við óskum þessum leikmönnum velfarnaðar í næstu skrefum og minnum á að Ásvellir verða alltaf heimili þeirra. Þau hafa lagt sitt af mörkum til að móta menningu, metnað og hjarta Hauka" segir í tilkynningu frá Haukum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top