
Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson segist nú vera að íhuga framtíð sína eftir að ungverska stórliðið Pick Szeged rifti samningi hans með skömmum fyrirvara fyrr á þessu ári. Í viðtali við Handball-World ræddi Gottfridsson um stöðuna sem kom honum í opna skjöldu, en hann hafði aðeins verið hjá félaginu í eitt tímabil þrátt fyrir að hafa skrifað undir þriggja ára samning. Hann sagði að hann og fjölskylda hans hefðu séð framtíð sína fyrir sér í Szeged og að hann hefði ætlað að ljúka ferlinum hjá félaginu. Gottfridsson er enn án félags en hefur þó áfram verið valinn í sænska landsliðið. Landsliðsþjálfarinn Michael Apelgren, sem einnig stýrir Pick Szeged, hefur lýst yfir stuðningi við leikmanninn þrátt fyrir erfiða stöðu hans hjá félaginu. Svíinn hefur jafnframt sagt að hann muni leita réttar síns og er tilbúinn að fara í lagalegar aðgerðir gegn Szeged og telur uppsögnina hafa verið ólögmæta. Í yfirlýsingu sem hann birti sagðist hann aldrei hafa fengið skýringar á ákvörðun félagsins og að hún bryti gegn bæði skrifuðum og óskrifuðum reglum íþróttarinnar. Gottfridsson er 33 ára gamall og hefur verið talinn einn besti leikstjórnandi heims undanfarinn áratug. Hann lék í tólf ár með SG Flensburg-Handewitt áður en hann flutti til Ungverjalands árið 2025. Með sænska landsliðinu varð hann Evrópumeistari árið 2022 og hefur tvívegis verið valinn verðmætasti leikmaður Evrópumótsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.