Silfurlið Olís-deildar karla, FH hefur tilkynnt að miðjumaðurinn, Antoine Óskar Pantano hafi gengið í raðir félagsins og hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH. Antoine gengur í raðir FH frá Gróttu þar sem hann er uppalinn. Antoine, sem verður tvítugur á árinu, hefur verið hluti af mjög öflugu 2006 landsliði undanfarin ár. Hann var í lykilmaður í liði Gróttu á nýliðnu tímabili þar sem hann skoraði 91 mark 22 leikjum. Þá var hann einnig í stóru hlutverki í liði Gróttu sem féll úr Olís-deildinni á þar síðustu leiktíð. ,,Antoine er virkilega efnilegur leikmaður sem við teljum passa frábærlega í okkar lið og okkar kúltúr en hér í Kaplakrika er allt til alls fyrir leikmenn að ná árangri. Við bjóðum Antoine velkominn í FH, væntum mikils af honum og hlökkum til að sjá hann í hvítu treyjunni," sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við undirskriftina. Antoine er annar ungur og efnilegur leikmaður sem gengur í raðir FH á stuttum tíma því Ágúst Guðmundsson var kynntur sem nýr leikmaður FH í gær en hann gengur í raðir félagsins frá HK.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.