
Jón Brynjar Björnsson var á dögunum ráðinn sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs Lugi í sænsku B-deildinni eftir eins árs dvöl í Svíþjóð. Jón Brynjar þjálfaði kvennalið Aftureldingar áður en hann flutti til Svíþjóðar vegna fjölskylduaðstæðna. Nú hefur hann hinsvegar komið sér vel fyrir í Svíþjóð og kominn á fullt í handboltaþjálfun hjá kvennaliði Lugi sem endaði 3.sæti sænsku B-deildarinnar. Handkastið sló á þráðinn til Svíþjóðar og spurði Jón Brynjar aðeins út í fyrsta árið sitt í Svíþjóð og hvernig það kom til að hann væri kominn inn í þjálfarateymi Lugi. ,,Þegar ég kom til Svíþjóðar þá hafði ég samband við Lugi og lét vita af mér. Ég var fenginn inn í greiningarvinnu fyrir meistaraflokks kvennaliðið og svo losnaði staða með 16 ára lið kvenna þar sem ég tók við," sagði Jón Brynjar aðspurður að því hvernig hann kom sér að hjá Lugi. ,,Tímabilið var lærdómsríkt og skemmtilegt þar sem 16-ára liðið endaði í 4.sæti á landsvísu sem var frábær árangur hjá stelpunum. Hafandi verið áður með U16 landslið kvenna hjá Íslandi þá var mjög áhugavert að fylgjast með muninum á æfinga kúltur milli Svíþjóðar og Íslands sem felst kannski helst í áherslu á líkamlega þáttinn og hlaupagetu," sagði Jón Brynjar og bendir á að flestar stelpurnar séu með 1-2 æfingar í viku í skólanum sínum. ,,Þannig að þær æfa mikið en annars er tæknileg geta ekkert ósvipuð milli landanna á þessum aldri," bætti Jón Brynjar við. ,,Lugi heyrðu svo í mér á dögunum þá vildu þeir taka mig beint inn í kvennaliðið og fá mig til að taka við sem aðstoðarþjálfara. Sem er mjög spennandi staða enda er þetta stórt félag í Svíþjóð með mikla og góða umgjörð," sagði Jón Brynjar. Hann segir að niðurstaða tímabilsins hafi verið vonbrigði. ,,Þetta er félag sem á heima í efstu deild. Liðið er ungt, með meðalaldur um 20-21 árs og því er enduruppbygging sem var að eiga sér stað en stefnan er sett á að fara beint upp. Ég hlakka mikið til að leggja mitt á vogarskálarnar til að hjálpa liðinu að komast á þann stað aftur. Ég verð svo einnig aðeins að aðstoða U-liðið þeirra til að tryggja sterka tengingu á milli liðanna," sagði Jón Brynjar að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.